

♥ Nýtt í albúmum, 22. ágúst: Húsafell, ágúst ofl ♥
♥ Ný myndbönd 22. ágúst♥
♥ Nýtt í dagbók, 29. júlí ♥
Velkomin á síðuna mína :)

♥ Ég heiti Ari Styrmir og
kom í heiminn 8. desember 2009, kl: 09:55 ♥
Ég vóg 3565 gr., 14 merkur og var 51 cm.
Foreldrar mínir eru
Almar Viðarsson og Erla Jörundsdóttir


Ást okkar verður með þér
hvenær sem þú þarfnast hennar.
Ást okkar verður með þér
þegar gleðin ber þig ofurliði.

Ást okkar verður með þér
þegar erfileikarnir eru að buga þig.
Ást okkar verður með þér
þegar þú óttast lífið.
Ást okkar verður með þér
í dag og alla daga.
Munið eftir gestabókinni :)
Pabbi er maðurinn sem verður svo montinn þegar maður fæðist að það mætti halda að það hafi ekki fæðst barn áður.
En það tekur hann bara nokkra daga að komast aftur niður á jörðina. Honum finnst skrítið að lítið barn skuli ekki geta sofið alla nóttina og pissað í klósett eins og annað fólk.
Samt veit hann allt! Svo þegar maður verður aðeins eldri og það er hægt að fara að leika við mann og kenna menni ýmislegt finnst honum rosa gaman.
Pabbi er alltaf til staðar með styrka hönd þegar á þarf að halda.
Pabbi er bestir maður í heimi...!!!
Mamma er konan sem kemur manni í heiminn með mikilli fyrirhöfn fæðir mann og klæðir og veitir alla þá hlýju og ástúð sem lítið barn þarf á að halda.
Þegar maður eldist og ætti kanski að geta hugsað meira um sig sjálfur, til dæmis að vera í hreinum fötum og laga til í herberginu sínu, leyfir mamma manni það ekki því hún er svo vön að hugsa vel um barnið sitt.
Mamma er alltaf til staðar með útrétta hjálparhönd þegar á þarf að halda, þerrar tárin þegar það er leiðinlegt og gleðjast með manni þegar gaman er að vera til.
Mamma er besta kona í heimi...!!!
22. nóvember - 21. desember
Lítill fjörkálfur hefur litið dagsins ljós. Bogmannsbarnið er að öllu jöfnu glaðlegt og jákvætt og þægilegt í návist. Það þarf mikla hreyfingu og líklegt er að það fari snemma að ganga og skoða heiminn því bogmaðurinn er merki ferðalaga og strax í bernsku birtist þörfin fyrir ævintýraferðir af ýmsu tagi. Litlu bogmannskrílin þurfa að hafa gott pláss til að hreyfa sig en ef þau fá ekki útrás fyrir orku sína verða þau eirðarlaus og uppstökk. Bogmenn hafa yfirleitt yndi af íþróttum og hið dæmigerða bogmannsbarn er iðulega á kafi í alls konar íþróttaiðkunum. Listin að ala upp bogmann er fólgin í því að finna jafnvægi á milli frelsisþarfar annars vegar og ábyrgðarkennar og aga hins vegar. Foreldrar ættu að veita honum aðhald og venja hann á að ljúka því sem hann er að fást við áður en hann byrjar á nýju verki. Hann á það til að vera mjög fljótfær og nokkuð kærulaus og því þarf að hjálpa honum að þroska með sér dómgreind og skynsemi. Bogmannsbarnið verður mikið á ferðinni og um leið og það fer að komast sjálft ferða sinna leggur það í ferðalag um nágrennið og síðan lengra þannig að það getur verið erfitt að hafa stöðugt augun á þessu barni. Góða ferð.
Munið erfti að kvitta í gestabókina 