Hæ,hæ
Var að kíkja á nýjustu myndirnar af Söru Margréti, orðin ekkert smá stór og dugleg (-:
Kveðja á línuna
Erla María, Róbert Karl og Atli Rafn
Hæ elsku Sara Margrét, ji hvað þú er mikil krútturúsína! :-) gaman að skoða myndirnar þínar!
knús frá köben
magga sigvalda
Hæ Sara Margrét
Ekkert smá hvað þú hefur nú stækkað frá því að ég kíkti inn síðast :) Algjört krútt!!! Rosalega gaman að sjá myndir.
Kveðja alla leið frá Kína
Langaði bara að kvitta fyrir innlitið... mikið ofsalega dafnar daman vel :) Hlakka mikið til að hitta ykkur mæðgurnar næst.
Ástralíukveðjur
Heiður
Elsku Sara Margrét
Til hamingju með mömmu þína sem er 28 ára í dag...Vá! mér finnst svoooo stutt síðan við vorum litlir prakkarar að leika en núna hafið þið Ernir Daði gert okkur báðar að mömmum og við sestar hinum megin við borðið...skrítið!
Knúsaðu mömmu þína frá okkur og við hlökkum til að sjá ykkur vonandi sem fyrst í grilli í Fossahvarfinu.
Þínir vinir...Við þrjú ;)
Elsku litli gullmolinn okkar, mikid soknum vid thin i friinu og enntha meira thegar vid skodum fallegu myndirnar af ther.
Astarkvedjur til mommu og pabba
Amma og afi a siglingu i Eyjahafinu
Hæ hæ sæta frænka, thú stækkar og stækkar (: Hlökkum til ad sjá thig eftir 1 1/2 mánud,
Bestu kvedjur til allra frá Mexico
Dáááásamlegar myndir af dáááásamlegri lítilli hnátu!
Hlökkum roooooooosalega til að hitta ykkur á morgun elsku fjölskylda.
hæ hó! það var gaman að rekast á ykkur í dag og fá loksins að sjá prinsessuna :-) Líka rosa gaman að kíkja á þessa síðu, held ég sé búin að skoða allar myndirnar! Sara Margrét er algjört æði, og gaman að sjá líka myndir af fleirum í fjölskyldunni. Maður sér ykkur alltof sjaldan! Sjáumst vonandi bráðum. Kær kveðja úr Svöluásnum, Bergdís, Kjarri, og Axel :-)
Hæ,hæ
Vildi bara kvitta fyrir innlitið, var aðeins að kíkja á prinsessuna...mér finnst hún ótrúlega lík ömmu sinni.
kv. Erla María og fylgifiskar
Hæ Sara sæta
Vildi bara þakka fyrir síðast og þakka fyrir flottu afmælisgjöfina ;O)
Sjáumst fljótlega
Kv, Silja María
Hæ hæ - bara að kvitta fyrir innlitið - gaman að fylgjast með Söru Margréti dafna svona vel!
Mér finnst nú ansi mikill mömmusvipur á forsíðumyndinni í þetta skiptið ;)
Bestu kveðjur úr Kópavoginum
Hæ, sætust.
Ég er búin að hugsa svo mikið til þín og mömmu þinnar í dag og hvað ég sakna ykkar mikið. Þótt það sé ekki enn kominn miðvikudagur þá er ég alveg í rúst yfir að sjá ykkur ekki næsta miðvikudag. Við skulum kalla þetta svona fyrirfram fráhvarfseinkenni! hahha.....
Nú verðum við 6 að fara að hittast og gera eitthvað skemmtilegt saman. Allt í lagi svona stundum að leyfa pöbbunum að fylgja með :)
Knus og kossar og skilaðu baráttukveðjum til pabba þíns í prófunum.
Þín vinkona og frænka (Víst!!!), Aldís Arna
Það er alltaf jafn gaman að skoða myndirnar af þér og orðin svo rosalega dugleg að standa.
Sjáumst vonandi fljótlega.
skemmtilegar nýju myndirnar - takk fyrir mig :)
Kveðja frá Ástralíu til ykkar allra
Elsku besta Sara Margrét okkar
Svooo gaman að sjá myndirnar af þér og hvað þú ert nú orðinn mikill húmoristi (með smá hjálp frá mömmu þinni!!!)
Hlökkum til að sjá þig sem fyrst þegar um hægist hjá okkur...við erum komin með fráhvarfseinkenni og fellum öll tár í koddann á kvöldin...hundfúlt!
Knúsaðu mömmu þína fyrir að vera mesta yndi í heimi, fyrir alla hugulsemina og fyrir að vera svona frábær manneskja. Heppin þú að vera dóttir hennar :)
Knús á ykkur öll og gangi ykkur vel,
Aldís Arna og strákagengið
Hæ sæta
Takk fyrir afmæliskveðjuna á síðunni okkar. Alltaf gaman að kíkja á þig hérna á síðunni - m&p ekkert smá dugleg að hlaða inn myndum af þér! Við gleymdum alveg að skipuleggja Hall-Junior-hitting í saumaklúbbnum áðan Anna..... verðum eiginlega að hafa svoleiðis fljótlega fyrst að þið Sara Margrét misstuð af síðasta Junior-Hall!
Kv, Sigga og co.
bara þakka fyrir innlitið... ég var alveg að fara yfir um að muna ekki lykilorðið :) en nú get ég aftur byrjað að fylgjast reglulega með þér fallega stelpa!
Kærar kveðjur frá Ástralíu
Váááá, hvað það er flott að hafa svona krúttlega hjartamyndaseríu...ég er bara með stjörnur í augunum. Og ekki spillir fyrir að sjá svona gullfallega og yndislega litla hnátu á myndunum sem er umvafin ást mömmu sinnar og pabba.
Hafðu það gott litla vinkona, hlakka til að sjá þig aftur...vonandi á miðvikudaginn?
Flott forsíða, stelpur og strákur :-)
Amma Magga
HAHAHAHHA....vá, ég hló mig máttlausa yfir myndbandinu þar sem allt varð að verða vitlaust í ömmustólnum!!! hahaha....BARA FYNDIÐ!!!
Bestu kveðjur frá okkur öllum og Andri vonandi batnar þér sem fyrst...veit að stelpurnar þínar eru ekki nema hálfar án þín!
Hæ,hæ
Var að kíkja á nýjustu myndirnar af prinsessunni og sjá hvað hún hefur stækkað mikið. Vildi bara kvitta fyrir innlitið.
kv. Erla María (Kópavogsskóla)
Eeeeeeeeeelsku besta vinkona mín Sara Margrét!
Þúsund þakkir fyrir innlitið í vikunni - alltaf svo gaman að fá þig í heimsókn, skoða þig, rífa doldið í eyrun þín, spjalla og gantast ! hihíhíhíhí...
Hafðu það sem allra best um helgina og ekki gera eitthvað sem ég, grallaraspóinn sjálfur myndi gera! haahha...
Þinn vinur, Ernri Daði
Elsku, elsku litla skvísa
Dásamlegt að skoða myndirnar af þér. Við getum ekki beðið eftir að hitta þig á miðvikudaginn og fá að knúsa þig smá. Ernir Daði alltaf spenntur fyrir að fá að leika! :)
Knús og kossar,
Hæ hæ litla ofurdúlla ;)
Það er aldeilis að þú hefur stækkað. Við verðum nú að fara að hittast. Kannski um helgina ef þið eruð laus. Verðum í bandi......
Takk fyrir síðast mikið var nú gaman að sjá þig. Það eru alveg æðislegar myndirnar af þér og Ernir Daða þið eruð bara langsætust og mestu krúttin.
Hae elsku fjolskylda, gledilegt àr og takk fyrir sendinguna, à orruglega eftir ad koma ad miklu gagni thràtt fyrir a Paulo sè nù mesta yndi med svefninn (hingad til) (;
Bestu kvedjur frà Mexico
p.s. thù ert alveg mesta krùtt Sara, ekkert smà gaman ad eiga svona saeta fraenku og geta skodad myndirnar thìnar
Elsku litla hnátan okkar
Við erum sko heldur betur líka búin að skoða sætu myndirnar af þér - þú ert svo mikið yndi og gull :) Og þúúúsund þakkir fyrir hæðarmælinn - ekki amalegt að m&p geti fylgst með hnokkanum stækka því hlutirnir gerast hratt um þessar mundir, Ernir ekkert smábarn lengu¨r!!!
Endilega hittumst á næstunni og förum að segja veðurguðunum stríð á hendur svo við komumst einhvern tíman í göngutúr.
Knús og ótal kossar,
Þínir vinir í Háholtinu, Aldís Arna frænka og Ernir Daði.
Litla ofurdúlla - já, það er ekki hægt að segja um þig neitt annað en að þú sért OFUR BEAUTY BOLLA! Hlakka svo til að hitta þig á morgun og spjalla um það sem á daga okkar vinanna hefur drifið undanfarið :)
Bis morgen ;)
Ernir Daði og já, mamma biður að heilsa - en ekki hvað! ;-)
Sæl litla frænka!
Takk fyrir síðast. Við Sigga systir erum búnar að sitja hérna fyrir framan tölvuna núna heillengi og reyna að giska á lykilorðið ykkar en ekkert gengur....er fólk alveg hætt að nota nöfn á gömlum gæludýrum sem lykilorð?:)
En allavega, okkur þætti voða gaman að fá að fylgjast með prinsessunni þar sem við hittumst nú ekkert alltof oft. Þið megið endilega senda okkur það með e-maili. Og þá getum við sent ykkur okkar ef þið hafið áhuga......
Sjáumst annars hress á jóladag hjá ömmu Siggu, og gangi þér vel í prófunum Andri!
Kv. Hanna + Sigga og allir hinir