Bjarni Lár
 

Ég heiti Bjarni Lár og ég fæddist þann 15 ágúst 2012. Ég er skírður í höfuðið á ömmu og afa sem heita Bjarni og Lára. 

Nafnið Bjarni er dregið af björn (ísbjörn segir mamma mín!) en uppruni Lár er ekki alveg vitaður en jafnvel talið að það sé dregið af "lárviður". Ég er lítið ljón og get sko alveg látið heyra í mér ef ég þarf þess, en að öðru leyti er ég ótrúlega geðgóður og alltaf brosandi og síkátur, nema þegar ég er ósáttur :)

Það væri gaman ef þið mynduð gefa ykkur tíma til að skrifa í gestabókina mína og ég skal reyna að halda áfram að vera sniðugur svo að mamma geti verið dugleg að pósta myndum og fréttum af mér Wink