Aníta Ingvarsdóttir
 


                                                               18. mars - Nýjar myndir

Litli gullmolinn okkar fæddist á FSA þann 3. maí 2009 kl. 20.55. Hún var 16 merkur og 55 cm við fæðingu, stór og stæðileg stúlka. Mamma og pabbi heita Inga María og Ingvar og hún er svo rík að eiga þrjú eldri systkini; Helgu Margréti, Ellen Ósk og Þorgeir.

Aníta er sérlega brosmild, skemmtileg og ákveðin stelpa. Þessi litli orkubolti elskar að vera úti að leika, er helst alltaf á hreyfingu og er strax orðin mjög stríðin (mamma er viss um að allt þetta hafi hún frá pabba). Eitthvað hefur stelpan frá mömmu líka því hún skríður ósjaldan í fangið með bók og vill láta lesa fyrir sig, mömmu til mikillar gleði.

Síðan er læst en það er hægt að senda mömmu póst til að fá aðgangsorðið. Netfangið er inga_maria_sig@hotmail.com