Jæja nú verður að fara að minna múttu á að setja inn einhverjar fréttir af þér. Maður er alltaf að tékka á þér. Bestu kveðjur í bæinn
Sæll!
Það var alveg frábært að fá að hitta þig í gær, alveg rétt það sem pabbi þinn var að segja.... þú ert eiginlega farin að hlaupa útum allt! Okkur finnst þú svo ótrúlega myndarlegur og ekkert baby sko :)
Næst komið þið til okkar, svona þegar þið farið að fara út.
Kveðja Sigrún og Orri
Hæhæ hann er algjör mús :) Vonandi gegnur allt vel hjá ykkur :)
Kveðja
Bjössi og Bogga
Enn og aftur til hamingju með prinsinn.
Ekkert smá flottur.
Vonandi gengur vel, lítill maður vær og góður :o)
Bíðum spennt eftir þessu!
Kv Fjóla, Gummi og Jón Aron
hæ sá er flottur. Mér finnst hann nú pínulítið líkur Einar kristjáni frænda sínum. En gangi ykkur nú vel og hafðu það nú gott litli frændi og láttu dekra við þig
ji takk fyrir þetta, hann er svo flottur =)
ég ætla að gerast svo djörf að fara fram á fleiri myndir takk =)
kveðja úr Norðurárdalnum
Innilega til hamingju með þennan fallega strák Stebbi minn og Jóna. Vonandi verður hann eins stilltur og þú varst Stebbi þegar þú varst lítill. Kveðja Olla
Innilega til hamingju með fallega drenginn ykkar og velkomin heim!
Gangi ykkur sem allra best.
Bestu kveðjur
Dabba og Brói
Vá ekkert smá fallegur!
Mér finnst Jónatan bara aldrei hafa verið svona lítill :)
Til hamingju með flotta strákinn!
Hann er nú meiri snúðurinn, alveg gull fallegur.
kv. Birna
Jiiii hvað maður er sætur - algjör bolti - hlakka til að kíkja á ykkur :)
elsku jóna og stebbi, innilega til hamingju með litla prinsinn, rosalega er hann fallegur, það var auðvitað ekki við neinu öðru að búast:) hafið það sem allra allra best .
Kæru Jóna og Stebbi til hamingju með fallega prinsinn ykkar. Gangi ykkur sem best í nýja hlutverkinu, kv Stína (Hjartarst.)
hæhæ og innilega til hamingju með litla snáðann, hlökkum til að sjá hann með eigin augum og látið fara rosalega vel um ykkur og hafið það sem allra best :)
Til hamngju með þennan myndar strák. Ég er enn að bíða eftir mínu kríli, er búin að vera dugleg að ganga og vera mikið á ferðinni síðustu daga en ég verð bara sprækari og sprækari með hverjum deginum. Fer í skoðun á morgun, það verður gaman að sjá hvað ljósan segir. Hafið það gott elskurnar mínar :) Kveðja úr eyjum:)
Kæra Jóna og Stebbi Innilega til hamingju með litla manninn hann er gullfallegur og megi ykkur ganga vel með hann bestu kveðjur frá Karólínu Einari Arney og Védísi Önnu
engin spurning um að þetta sé sætasi strákur sem að ég hef séð ,sko sætasta barn
halló dúlla
vissir þú að þú átt frænku sem er næstum jafn sæt og þú ;-)
Elsku Jóna og Stebbi innilega til hamingju með prinsinn ykkar,og gangi ykkur vel í framtíðinni. Hlakka til að sjá litla prinsinn Kveðja úr Ranavaði
Hæhæhææ ofur krútt,
Það er nú ekkert smá hvað maður er sætur!! Enda kominn af fallegu fólki ;) Þú ert nú meiri prinsinn, greinilega algjört kvennagull. Bíðum spennt eftir að hitta þig...sem verður vonandi fyrr en síðar :)
Risa knús og milljón kossar til þín og mömmu og pabba.
Kveðja
Lilja, Nonni, Danival Ísak og Dagur Aron.
Sæll litli Hnoðri:)
Velkominn í heiminn stóri strákur. Elsku Stebbi og Jóna innilega til hamingju með frumburðinn:))
Gangi ykkur rosa vel
Kv Sigga,Siggi, Bjarki Snær og Eyþór Breki
Velkominn heim litli prins. Þú ert agalega flottur. Hlakka til að hitta þig aftur og fá að knúsa þig um páskana.
Bið að heilsa mömmu og pabba. Hafið það gott
Halló
Velkomin heim og til hamingju þú ert sætur og alveg indislegur hlakka til að heimsækja ykkur og sjá þig.
Kveðja Ástrún
Ji minn hvað maður er mikil mús :) Og til hamingju enn og aftur og velkomin heim :)
Óttalega ertu þú nú sætur.... spruning um að ég fari að fá Orra í að framkvæma þetta sem ég var að tala um um daginn.... hver getur staðist svona? Allavega, velkomin heim og hlakka til að sjá fleiri myndir!
Sigrún frænka
Velkominn heim!
Flottar myndir, algjör hnoðri :)
Kv. Drífa
Æ þú sætasta mús... Þú ert svo fallegur lítill snáði... Bið að heilsa í næsta hús, mun svo aðeins fá að kíkja á ykkur þegar fer að hægjast um.. Gangi ykkur ofsa ofsa vel
Elsku Jóna okkar og Stefán Þór.
Ynnilega til hamingju með litla kútinn ykkar. Hann er svo fallegur drengur :-)
hlökkum til að sjá fleiri myndir af honum og ykkur líka að sjálfsögðu....
Bestu kveðjur frá Belgíu.
híhí Lilja ég er búin að sjá myndir:) :) ég var orðin svo óþolimóð að ég fór á Apótekið og þar var stolt amma sem var með myndir af honum:) hann er algjör dúlla og svo blandaður finnst mér...
til hamingju aftur elskurnar hann er svo fullkominn!!!!
kveðja uppáhalds Raggan ykkar