Góða ferð og njótið þess að vera í fríi, (ekki víst að það sé hægt að sofa út í einhvern tíma :) Það verður gaman að sjá myndir af krílinu....
hæhæ ég ákvað að kíkja á nýja bloggið hjá þér en hlakka geðveikt til ef þú kíkir á bloggið mitt þá er alltaf og hlakka svo til þegar jóna eignast barnið en ég vona að við getum komið og kíkt (örrigglega allveg eins og ég nei djók) en ég veit að þetta verður sætasta barn í heimi hlakka geðveikt til
Hæhæ hérna ég get ekki opnað síðuna hjá ykkur... hérna má ég ekki annars fylgjast með???
Góða ferð á morg =)
heiti hér með á ykkur að ef krílið kemur fyrir helgi þá komum við í heimsókn á sunnudaginn,( bara setja smá pressu.)
kveðja frá Bifröst
Hæhó lilta bumbukríli
Til hamingju með síðuna þína. Nú fer bara óðum að styttast í að þú ferð að bera þennan skrítna heim augum, ótrúlega spennó allt saman. Gangi ykkur rosa vel fyrir norðan, þar er sko dekur í lagi:))
Kv Sigga, Bjarki Snær og Eyþór Breki
Hæhæ litla kríli bara að kvitta fyrir innlitinu hjá ykkur :)
Jæja nú fer að styttast í krílið og vonandi gengur bara allt vel og það verður gaman að geta fylgst með ykkur hér á síðunni. En jóna min og jú auðvita þér líka stebbi gangi ykkur nú vel fyrir norðan .
kveðja Einrún frænka (enginn yfirfrænka) og co
Hæ hæ fyrst ég vissi nú leyniorðið þá ruddist ég nú bara inn á síðuna. Maður á nú eftir að fylgjast með ykkur, gangi ykkur vel
Kv. Anna Sigrún
Halló!
Jæja nú fer þetta að styttast allsvakalega. Við þurfum sennilega að fara að gera vagninn klárann svo að litla stelpan hafi nú vagn þegar hún kemur heim. (ég fer ekki ofan af því að þetta er stelpa fyrr en annað verður sannað fyrir mér)
Gangi ykkur rosa vel og Jóna mundu bara að þetta er "pís of keik"
Kveðja, Sigrún frænka
Halló halló og til hamingju með síðuna! Rakst á hana fyrir algjöra tilviljun. Nú fer að styttast í lilta krílið sem er svo kannski bara ekkert svo lítið!
En jæja, við munum fylgjast spennt með hérna úr næsta húsi hvernig þetta gengur allt saman og svo stelst maður yfir til ykkar þegar þið eruð komin heim!
Gangi þér ofsalega ofsalega vel næstu daga, þetta er bara dásamlegt!
Bestu kveðjur!
hæhæ..
Voða fín kúla sem þú er með:) Ertu ekki orðin spennt? Vonandi hefur þú það gott og vonandi gengur fæðingin vel hjá þér !!
Hlakka til að sjá svo myndir af krílinu þínu þegar þar að kemur :)
Við eigum nú eftir að fylgjst með hér..
Hæ, bara við að kvitta fyrir okkur. Hlökkum mikið til að eignast nýjan vin til að leika við :)
Drífa og Magnús Ari
Hæ bara að skoða.
Lykilorð eru fljót að berast innan saumó :o)
Gaman að geta fylgst með ykkur.
Gangi ykkur vel.
Fjóla og co
Til hamingju með síðuna! Æðislegt að sjá myndirnar af ykkur hjónakornum þegar þið voruð lítil...kannski ég hermi bara ;) Ég vil fá sms um leið og eitthvað gerist þar sem að ég verð líklega í USA og vil geta keypt réttu fötin :Þ Gangi ykkur vel, Kveðja Heiða (23 vikur and counting)...
Hæ hæ hæ,
Flottar myndirnar af þér :) ég er nú nokkuð viss um að þetta sé lítil prinsessa..ekki veitti nú af til að jafna út þetta strákaflóð sem við x-eiðanemar búum til ;) hihi
Hlakka nú til að heyra í þér næst, sem verður eftir að krílið verður komið í heiminn. Gangi ykkur vel og hlakka SVO til að fá fréttirnar :-)
Kveðja
Lilja,
Jú mamma biður að heilsa, fannst þú svo flott svona ólétt :)
hæhæ og gleðilegt ár. Mér langar að sjá fleiri bumbumyndir :)
eitt barnið í hárgreiðsluhópnum fætt í viðbót, Jóhanna Katrín búin að fá strák .
Hlakka til að sjá fleiri myndir.. Kv Jóhanna Fylkis og Grétar Smári
Halló sæta fjölskylda!! ég var á barnanet rúnti og ákvað að prófa hvort þið væruð með síðu OG viti menn audda eruð þið komin með hana:) til hamingju með það! hlakka til að fylgjast með ykkur:)
knús í kaf Ragga Sveina og Jón Aðal
Hæ hó... auðvitað fyrsta sem ég gerði þegar ég kom í vinnuna var að kíkja :) Þið voruð nú bæði alveg ótrúlega falleg börn... er er alveg hissa. Vissi nú svo sem hvernig Stebbi, held að það séu til jafn margar myndir af Stebba og af mér á heimili móður minnar.... sem segir manni bara að hann hefur alltaf verið svona sjúkur í athygli. Núna fylgist maður spenntur með þegar nær dregur.
Kveðja Sigrún Hauks
hæhæ.. Gaman að geta skoðað myndirnar af ykkur ..Hlakka til að sjá krílið þegar það kemur í heiminn ..
Svo væri nú æðislegt ef við gætum nú hist stelpunar úr hárgreiðslunni með börnin við tækifæri ..
Jólakveðjur Jóhanna og litli prins (sem fær nafn 30.des)
Gaman að geta fylgst svona með, hlakka til að sjá krílið.
Látið ykkur líða vel síðustu vikurnar.
Kv. Helga.
þeta er efnilegt hjá þér systir, maður á eftir að kíkja og kvitta hér þegar nær dregur. bið að heilsa stóra barninu honum Stebba
kvitti kvitti, bíð spennt að það gerist eitthvað meira á þessari síðu
hafið það gott
kveðja úr gula gámnum
Hæ hæ
Flott síða, skemmtilegar myndir af ykkur þegar þið voruð lítil:)
Gangi ykkur vel!
Varð að sjálfsögðu að kíkja, voða dugnaður í þér :) Hlakka til að sjá meira
En hvenær á Magni að eiga sitt barn? :)
Bara mjög efnilegt hjá þér systir. Hlakka til að fylgjast með áfram
varð að kvitta líka =)
hæhæ er enginn mynd af aðal frænkunni,en hlakkar geggjað mikið til að fá lítið frændsystkyni í þessari fjölskyldu en hlakkar geggjað mikið til að hitta ykkur um jólinn fyrst hlakka ég til jólanna svo til að fá litla feb búan og svo páskarnir nó að hlakka til en það eru einhverjar stafsetningar villur en vonandi var ég fyrst að skrifa bæbæ
ps:kíkki reglulega