Æðislegar myndirnar frá Köben, það var augljóslega mjög gaman hjá ykkur :)
Bestu kveðjur til þín og mömmu og pabba
Hæ hæ sæti strákur.
Gaman að skoða myndirnar frá Köben. Þetta hefur verið meiriháttar ferð hjá ykkur fjölskyldunni.
Hlökkum til að sjá ykkur í næstu viku.
Kveðja
Birgitta og Oddný
Hæ herra yndislegur!
Velkominn heim frá Danmörku, það er nú meira veldið á þér að flakka svona um heiminn eins og ekkert sé! Þú ert alvöru töffari!
Knús og kossar,
Inga frænka
Hæ hæ!
Þú ert svoo mikil rúsína og jafnframt algjör gæi ;) Svo viljum við óska ykkur öllum innilega til hamingju með fallega nafnið.
Kv. UA og ÞT
hæ hæ Andri Þór.....
Æðislegar myndirnar af þér, mömmu og pabba í Köben!!
Hæ Andri og fjölskylda!
ég vona að þið hafið skemmt ykkur vel í Kaupmannahöfn um helgina og ég hlakka til að sjá myndir af ferðalaginu.
Knús, Regína
Hæ Andri Thór.
Innilega til hamingju med thetta fallega nafn. Vid hlökkum mikid til ad hitta thig á sunnudaginn í thinni fyrstu utanlandsferd. Skiladu kvedju til mömmu og pabba.
Kær kvedja, Margrét & Co. í Kaupmannahöfn.
Hæ sæti strákur!
Gaman að rekast á ykkur mæðginin á göngu um hverfið um daginn :)
Kær kveðja, Ragnheiður
Hæ Andri,
Skemmtu þér nú vel í útlandinu og ég hlakka til að hitta ykkur familíu þegar þið komið heim.
Knús frá Karen
Hæ sæti,
Það er naumast að þú ert búinn að eignast marga vini á þinni stuttu ævi - enda ertu svo sætur og skemmtilegur! Sjáumst vonandi á sunnudaginn!
Knús og kossar,
Inga frænka
Sæll Andri.
Seint skrifa sumir en skrifa þó. Innilega til hamingju með þetta fína nafn, það er aldeilis hvað þú hefur stækkað á þessum stutta tíma frá því að þú komst í heiminn, aldeilis! Við biðjum að sjálfsögðu að heilsa mömmu þinni og pabba.
Kveðjur frá okkur baunabúum.
Hæ hæ Andri Þór sæti! :) Æðislega flottar allar nýju myndirnar af þér - þú ert orðinn svo stór og flottur strákur!!! Núna verðum við að fara að hittast bráðlega aftur.. Birta Ósk bíður spennt eftir því að knúsa þig ;) Sjáumst vonandi fljótlega.
Knús, Vigga og Birta Ósk
Til hamingju með yndislega soninn ykkar. Hann er rosalega fallegur og við hlökkum til að sjá hann í matarboðinu sem þið eruð næst til að halda! :-)
Hæ sæti :)
Vá hvað þú ert orðinn líkur pabba þínum hahaha, alveg lítil útgáfa. Hvernig líst ykkur á lunch í vikunni? Töluðum við KEJ og hún var til í að hittast e-n tíma í vikunni ef þið hafið tíma. Verðum í bandi.
Knús ykkar vinkonur Bára Mjöll & Agla Bríet.
Hæ sæti,
Þú hefur greinilega nóg að gera í félagslífinu, alltaf troðfullt af krökkum í kringum þig! Það kemur mér líka ekkert á óvart því þú ert svo sætur og skemmtilegur!
Bið að heilsa gamla settinu!
Inga
Alltaf jafn gaman að skoða myndirnar af þér. Hlakka til að sjá þig næst í eigin persónu. Bið að heilsa mömmu þinni. Kv. Heiður
Elsku Þröstur og Unnur, innilega til hamingju með litla prinsinn, hann er algjört æði!
Þú ert alltaf sama krúttið, ert alveg yndislegur!!!!
Sammála því hvað hann er að líkjast pabba sínum :)
Hlakka til að sjá hann loksins "live" næstu helgi...... þ.e.a.s. Andra Þór :)
Vá hvað þú ert orðinn stór og mannalegur :)
Það er orðið alltof langt síðan við sáum þig síðast!
Bestu kveðjur
Þú ert sko algjör rúsína :) Hlakka til að sjá þig á morgun. Þá fæ ég loksins að sjá þig í alvörunni en ekki bara á myndum!
Va hvad hann er likur pabba sinum a fyrstu myndinni i okt.albuminu...alveg eins
Sjaumst fljotlega
Jiminn eini hvad madur er yndislega mikid krútt. Meiriháttar nýju myndirnar.
xxx Magga
Nú bíð ég spennt eftir október myndaalbúmi!!!
Knús og kossar,
Inga frænka
Til hamingju með litla prinsinn, hann er ekkert lítið fallegur og þið takið ykkur vel út í foreldrahlutverkinu. Verðum að fá að kíkja á hann áður en það sem við keyptum handa honum áður en hann kom í heiminn verður of lítið!
kveðja,
Tryggvi og Sonja
Til hamingju með fallega nafnið þitt sæti:) Gaman að fylgjast með
Kveðja Oddný og Eva Natalía
Hæ elsku Andri Þór.
Innilega til hamingju með fallega nafnið þitt :D
Agla Bríet er einstaklega ánægð með nafnið enda búin að ákveða að ef að hún eignast bróðir eigi hann að heita Andri :) hahahha. Knúsaðu mömmu og pabba frá okkur, hlökkum til að sjá ykkur fljótlega.
Knús ykkar vinir Bára Mjöll, Kalli & Agla Bríet.
Elsku litli Andri Þór.
Innilega til hamingju með fallega nafnið þitt. Myndirnar úr skírninni mjög vel heppnaðar og allir svo fínir og glaðir. Þú dafnar mjög vel sé ég og hlakka svoooo mikið til að sjá þig. Og svo ertu byrjaður í leikfimi!! þetta líst mér vel á. Er búið að skrá þig í Víking???
Skilaðu bestu kveðju til mömmu og pabba frá okkur öllum.
Besos
Kristín frænka.
Til Hamingju með nýja flotta nafnið Andri þór. Gaman að sjá myndirnar úr skírninni. Bið að heilsa mömmu og pabba :)
kv.Anný Rut
Til hamingju með þetta líka flotta nafn. Voða hljóta mamma og pabbi og ömmur og afar að vera stolt :-)
Við hlökkum til að sjá þig - ekki langt þangað til að við komum aftur HEIM.
Hilsen frá DK