Innilega til hamingju með nýjasta fjölskyldumeðliminn :)
Ég var að tala um það við bestu vinkonu mína í gær að Unnur væri ekki búin að eiga og á þeirri stundu voruð þið´á spítalanum :)
Vá, njótið þessa daga, þeir eru svo frábærir.
Knús og kossar, hlakka til að sjá myndir.
Innilega til hamingju með litlu systur :) Hlökkum mikið til að sjá myndir. Kv. Anna Lilja og fjölsk.
Vá hvað þú ert orðin stór strákur Andri Þór og ég sé að þú ert orðinn stóri bróðir líka, til hamingju með litlu systir. Knúsaðu nú mömmu þína frá mér og hlakka mikið til að sjá myndir ;)
Badmintonkveðja
Brynja P.
Innilega til hamingju með litlu prinsessuna. Mikið er hún heppin að eiga svona frábæran stóra bróður. Hlakka til að sjá myndir af ykkur :)
knús knús
Brynja S.
Elsku Andri Þór.
Okkar innilegustu hamingjuóskir með litlu fallegu systir þína :D mikið er hún heppin að eiga svona stóran og flottan bróðir. Hafið það yndislegt elsku fjölskylda og gangi ykkur vel. Hugsum til ykkar og hlökkum til að sjá myndir af stórfjölskyldunni.
Ást og knús ykkar vinir á Álftanesinu.
Elsku Andri Þór,
Til hamingju með litlu systur.
Gangi þér vel í stórabróðurhlutverkinu :)
Kveðja úr Ögurásnum.
Hæ sæti, ég var fyrst núna að taka eftir myndböndunum á síðunni þinni og skemmti mér rosalega vel við að hlusta á þig syngja svona fallega! Þú ert algjört sjarmatröll og verður örugglega poppstjarna í framtíðinni :) Kveðja, Inga
Þú ert alltaf jafnmikið krútt og grallaraspói Andri Þór. Gaman að sjá myndirnar af þér - og von bráðar sér maður líka myndir af litla bróður´þínum, vei hvað það verður gaman.
Ég bíð spennt fregna :)
Gangi ykkur vel og njótið sumarsins,
Aldís Arna
Hæhæ, alltaf gaman að skoða myndir af ykkur :)
Knús knús
Brynja Sævars.
Gaman að fá að kíkja á myndir af þessum flotta strák og fjölskyldumeðlimum. Það verður spennandi að fylgjast með þegar nýr fjölskyldumeðlimur kemur í heiminn í júlí.
Sumarkveðjur til ykkar
Anna Lilja
Hæ hæ
Gaman að skoða allar nýju myndirnar þínar enda hefur greinilega verið nóg að gera undanfarið :) Við fórum í Slakka á síðasta laugardag en það hefði nú verið gaman að hittast!! Tek undir með síðustu ræðumönnum hér, þetta er mega flottur bústaður sem þið voruð í :)
Biðjum að heilsa fjölskyldunni
úbbs.. ég aftur ;)
En hvað mamman er búin að vera dugleg að setja inn myndir núna :) Skemmtilegar allar nýju myndirnar og ekkert smá flottur bústaðurinn sem þið voruð í! :)
Birta Ósk er annars búin að vera að spurja um vin sinn.. svo við þurfum nú aldeilis að fara að hittast ;)
Heyrumst
- Vigdís
Hæ herra sætastur! Rosalega hefur verið gaman hjá þér á Álftavatni og næsta nágrenni, geggjaður "bústaður" líka! Bið að heilsa mömmu og pabba! Inga
Flottur "bústaðurinn" sem þið voruð í :) Það var greinilega nóg að gera hjá ykkur í sveitinni!
Hæ sæti gaur. Voðalega ertu orðinn stór og flottur:) Sjáum þig vonandi í sumar (verður mamma þín ekki kas í fríi í júní?) Knús frá okur Agli
Skemmtilegar allar nýju myndirnar. Það er greinilega mikið stuð í leikskólanum og Andri Þór alveg óhræddur í sveitinni að hnoðast með hundunum :)
Sjáumst vonandi á röltinu í Fossvoginum í sumar :)
Bestu kveðjur. Hellulandsfamelí
Flottar nýju myndirnar af þér, mikið hefur verið gaman í sveitaferðinni :)
kv Unnur og Ólafía Þurý
Hæ sæti, rosalega hefur verið gaman hjá þér í maí!! Vonandi verður jafn mikið stuð í júní! Kveðja, Inga frænka
Hrikalega krúttleg forsíðumyndin af stóra stóra duglega stráknum sem er hættur með bleyju og alles! Takk fyrir síðast sæti pési :)
Gaman að skoða myndir af flotta töffaranum. Við þurfum að hittast sem fyrst!
Kv.
Heiðrún og Þórir Leó
Til erum við :)
Þyrftum að ná einni Víkur-ferð áður en við förum til Ítalíu :)
Skemmtilegar myndir, greinilega alltaf nóg að gera hjá ykkur :)
En gaman að sjá nýjar myndir :) Birta Ósk þarf nú alveg að fara að hitta vin sinn.. bætum úr því sem fyrst :)
Knús - Vigdis
Flottar myndir af þér sæti gaur - væri gaman að sjá ykkur í júní!
Bestu kveðjur frá Stokkhólmi:)
Æðislegar nýju myndirnar af þér, segi það sama og Inga flott nýja hárið þitt :)
Æðislegar nýju myndirnar og þú svona flottur með knallstutt hárið, algjör töffari!! Knús og kossar á ykkur öll! Inga frænka
Alltof langt síðan að við höfum hist.
Verðum að bæta úr því fljótlega...knús og kossar úr Vesturbænum
Hæ sæti, flottar myndirnar þínar :)
knús knús
Brynja S
Hæ sæti, takk fyrir skemmtilega morgunstund, þú manst svo að hringja í mig við tækifæri og fá mig með á kaffihús eða bara út að leika. Mikið hlakka ég svo til að sjá fleiri nýjar myndir ... enda ertu fjallmyndarlegur og ekki að ástæðulausu sem þú varst "uppgötvaður" í dag :) hihi. Knús og kossar, Inga