Til hamingju með afmælið stóri strákur :)
Knús, Oddný
Til hamingju með daginn Andri Þór! Tíminn líður svo fljótt og þú bara orðinn 1 árs :) Bið að heilsa mömmu þinni og pabba. Hafið það gott í dag.
Kv. Ragga
Elsku sæti frændi,
Innilega til hamingju með afmælið, njóttu nú dagsins í botn!
Knús og kossar,
Inga frænka
Innilega til hamingju með 1 árs afmælið sæti strumpur !!
Við hlökkum til að hitta ykkur á eftir :-)
Knús frá fjölskyldunni Baugakór
Til hamingju með afmælið Andri Þór...vá hvað tíminn flýgur:)
Hlökkum til að hitta þig á eftir og knúsa þig.
Elsku besti frændi minn,
Til hamingju með 1 árs afmælið. Njóttu dagsins og ég hlakka til að hitta þig seinna í dag.
Kveðja úr Garðabænum
Hæhæ!!!
Til hamingju með afmælið :-)
Ótrúlegt hvað tíminn líður!
Hafðu það sem best í dag, við hugsum til þín!
Knús frá Japan,
Katrín, Sonja og Tryggvi
Þú stækkar og stækkar..enda alveg að verða eins árs !! Nú verð ég að fara að kíkja í heimsókn, hlakka til að sjá þig. Knús, Oddný
Velkomin heim grallarinn minn. Þú ert heldur betur orðinn sigldur og ekki búin að ná fyrsta afmælisdeginum þínum, aldursforsetinn í fjölskyldunni. Það er augljóst að þið skemmtuð ykkur vel saman í Köben.
Ástarkveðjur til mömmu og pabba og kossar til þín.
Kristín frænka.
Vá hvað þú ert orðinn stór... Og greinilega algjör grallari eins og ég. Við þurfum að hittast einhvern tímann og grallarast saman.
Kv. Sigurður Flóvent og mamma
Hæ hæ sæti! Æðislegar nýju myndirnar, alltaf jafn flottur og kátur! :) Algjör grallari..
Væri gaman að hittast mömmuklúbburinn núna þegar allir eru á landinu - áður en sumarið klárast!!? Gætum jafnvel hist bara seinnipart eftir vinnu..
heyrumst - kv. Vigdís og Birta
Vá hvað hefur verið æðislega gaman hjá ykkur þarna úti og þú alltaf jafn sætur og brosmildur!!
Vonandi getum við nú farið að hittast bráðum..
knús
P+fjölsk.
Vorum að renna yfir júníalbúmið þitt og vildum bara kvitta fyrir okkur! Hlökkum til að hitta ykkur sem fyrst - nú fara flestir að verða búnir í þessu útlandastússi og við getum farið að leika okkur aftur :)
Kv, AGB og SÓ
Sæll frændi og takk fyrir seinast.
Já, það er orðið langt síðan við hittumst. Kannski foreldrar okkar bæti úr því á næstunni - erum við ekki alltaf í sömu sveitinni annars?! Annars erum við á Akureyri þessa dagana að skoða okkur um, góða skemmtun í Danmörku.
Kær kveðja,
Matthildur & co.
Gaman að skoða nýju myndirnar. Vona að þið hafið það gott í Danmörku. Hér er líka rigning....vonum að það fari að skána. Við greinilega völdum rétta viku til að vera á Íslandi.
Hlakka til að sjá ykkur í ágúst. Knús FJ
Hæ sætastur.
Komin með 7 tennur og farin að ganga með:-) Myndirnar frábærar og þú alltaf glaðastur. Skemmtu þér vel í Danmörku.
Kveðjur frá Benidorm
Kristín frænka.
Hæ sæti strákur.
Mikið ertu orðinn duglegur að labba með :) og vá hvað þú ert orðinn stór og flottur. Það er allt allt alltof langt síðan við sáum þig síðast og alveg kominn til á að bæta úr því. Góða skemmtun í Danmörku vonandi sjáumst við sem fyrst eftir að þið komið heim.
Stórt knús á línuna Bára Mjöll, Kalli, Agla Bríet & Andri Snær.
Skemmtilegar nýju myndirnar. Þú ert orðinn svaka duglegur. Góða ferð til DK og hafið það rosalega gott. Bið að heilsa gamla settinu ;)
Kv. Ragga
Góða ferð til Danmerkur :-)
Það verður örugglega frábært hjá ykkur úti. Hlökkum til að hitta ykkur þegar þið komið heim......
Bestu kveðjur, Ingibjörg og Hafsteinn Orri
Elsku frændi.
Takk fyrir síðast. Það var rosa fjör hjá okkur á trampólíninu.
Nú er Danmerkurferðin að bresta á hjá ykkur fjölsyldunni. Góða ferð og hafið það sem allra best. Hittumst svo hress síðar í sumar og þá förum við aftur á trampólínið.
Biðjum öll voða vel að heilsa afa og ömmu.
Sjáumst :)
Kveðjur úr Hellulandinu =)
Nei vei bara komnar nýjar myndir! :) Takk fyrir daginn, rosa gaman að hittast og leika saman! Góða ferð til DK :)
Hæ hæ elsku kall vá hvað þú hefur stækkað, ert orðin algjör risi og ekkert smá duglegur. Gaman að sjá hvað þú ert alltaf kátur.
Kossar og knús á liðið
Siggi, Maja, Ásdís og Emma
Hæ krúttilíus, vá hvad thú ert ordinn stór og farinn ad ganga med og alles. hlakka til að sjá thig :)
knus Magga
Hæ hæ
Vildi bara kvitta fyrir innlitið.
Alltaf jafn sætur og brosmildur.
Haltu áfram að vera svona duglegur :)
Kv. UA og ÞT
Þú ert orðinn svo stór og duglegur og bara farinn að ganga næstum alveg sjálfur. Hlakka til að sjá þig, vonandi bráðum :)
En hvað þú ert flottur svona nýklipptur og sætur! :) Skemmtilegar nýju myndirnar þínar.. þú ert ekkert smá duglegur og algjör gaur!! ;)
Sjáumst vonandi bráðlega - Knús
Halló sæti dúllurass,
Þú ert algjört sjarmatröll!!
Vonandi sjáumst við eitthvað á klakanum. VIð mæðgur komum heim 29.júní og svo kemur pabbinn 3.júlí. Ég og Guðný vorum að spá í að fara út þann 29. júní í smá sötr...ef þú kemst með...þá væri það gaman.
Knús og klem, FJ og HE.
Hæ sæti grallaraspói,
Hvað segirðu gott? Alltaf jafn hress og kátur? Já, ég er alveg sannfærð um það. Ég hlakka til að sjá júní-myndir af þér :)
Knús og kossar,
Inga frænka
Elsku frændi.
Þú ert heldur betur orðin stór og duglegur, farin að standa upp og allt. Skemmtilegasta myndin úr maí er þar sem þú ert að skjæla eftir að búið var að þvo þér í framan. Ég var farin að halda að þú vaknaðir og sofnaðir brosandi, svei mér ef ég hefði ekki trúað því að þú brostir í svefni. Hvílíkur gleðibolti. Húsdýragarðurinn var skemmtilegur, gaman að sjá hvað þú ert mikið klæddur, vetlingar og húfa og þykk úlpa. Það er auðvelt að gelyma að hlýrabolir eru ekki hversdagsklænaður á ilhýru Frón.
Kystu pabba og mömmu frá okkur.
Andri Þór sæti!! Ég er farin að sakna þín svakalega mikið.. verðum að hittast bráðlega, gengur ekki að mamma þín sé bara farin að vinna!!! ;) Spurning um að reyna að stefna á mömmuklúbb um helgi bráðlega svo að við getum hist :)
Hafðu það gott félagi - Knús, Birta