Gullmolarnir
 
Velkomin á síðuna okkar {#emotions_dlg.kiss}

Ég heiti María Líf og fæddist þann 5.júní 2007.  Ég var 14 merkur og 50 cm og með mikið dökkt hár og algjör fegurðardís. Augun mín eru blá/grá og gullfalleg og mamma og pabbi voru og eru að rifna úr stolti. Ég var skírð þann 7. október 2007 og fékk þá fallega nafnið mitt. Kennitalan mín er rosalega skemmtileg; 050607-3210. 

Þann 23. apríl 2010 eignaðist ég tvíburabræður, sem ákváðu að flýta sér örlítið í heiminn en þeir áttu að fæðast á þjóðhátíðardaginn, 17. júní. Þeir voru 6,5 og 7 merkur og 43 og 43,5 cm og báðir ljóshærðir. Þeir voru svo skírðir þann 10. júlí 2010 og fengu þá fallegu nöfnin sín, Almar Daníel og Bergur Sveinn. Núna eru augun þeirra að verða alveg blá og hárið virðist vera að dökkna aðeins . Ég ætla að leyfa þeim að eiga þessa síðu með mér enda segja mamma og pabbi að ég sé rosalega góð stóra systir og mér finnst bara gaman að hjálpa þeim með strákana.


Mamma mín heitir Eva Guðrún Sveinsdóttir og er tannlæknir og pabbi heitir Ágúst Sverrir Daníelsson og er nuddari og einkaþjálfari. Þau eru bæði fædd árið 1983 og því 31 árs á þessu ári. Núna búum við í Noregi þar sem mamma er í sérnámi í barnatannlækninum og pabbi er að vinna. 

Endilega muna svo að kvitta í gestabókina {#emotions_dlg.wink}






Heimsóknir í dag: 1
Heimsóknir frá upphafi: 1772