
Haust 2019.
Við vorum í heimsókn hjá afa Danna og Guðrúnu. Við vorum að klæða okkur eftir heimsóknina þegar Guðrún tekur upp aðra úlpu strákanna. Hún fer að skoða inn í úlpuna og reyna að finna merkingar.
Guðrún: "Bergur, er þetta þín úlpa?"
Bergur: "Já þetta er mín"
Guðrún: "Hvernig þekkirðu úlpurnar í sundur?"
Bergur: "Ég geri það ekkert, ég tek bara einhverja"
---------------------------------------------------
Haust 2019.
Mamma fékk áminningu á facebook um það þegar Bergur Sveinn var 3ja ára og sat veikur uppi í sófa í Noregi með Smarties í skál. Mamma sýndi Bergi myndina og Almar kom að kíkja líka.
Almar: "Ha? Eru þetta við?"
Mamma: "Nei Almar, þetta er Bergur Sveinn" :D
---------------------------------------------------
September 2019 - Skólasetning
Dagur nýi kennarinn var að tala við börnin við skólasetningu í 4.bekk. Mamma og pabbi komust ekki með og því fór amma Gulla með strákunum í skólasetninguna. Amma Gulla fór aðeins fyrr af skólasetningu strákanna til að fara með Maríu Líf á sína skólasetningu, en frétti af fyndnu atviki úr skólastofu strákanna.
Dagur: "Jæja, eru allir hér með foreldri með sér?"
Almar: "Nei, ekki ég"
Bergur: "Nei, ekki ég heldur" :)
--------------------------------------------------
Janúar 2018
Bergur: "Mamma, mamma, viltu koma? Sjáðu, hérna (bendir á mitt bringubeinið) er vélinda"
Mamma: "Já, það er alveg rétt. Hvernig vissirðu?
Bergur: "Við lærðum það í 1.bekk
Almar: "Já, og hérna er lungan, hérna er hjartað og hérna eru smáormarnir"
--------------------------------------------------
Júlí 2017
Umræðurnar voru um hvaða lönd við fjölskyldan hefðum heimsótt.
Almar: "Það eru allir svo klikkaðir í Portúgal!
Mamma: "Nú? Af hverju?"
Almar: "Þú veist, Portú-og-GAL"
Júlí 2017
Fjölskyldan er á leið heim eftir matarboð hjá ömmu Olgu og Steina í Garði. Mamma er á sínum bíl með börnin og pabbi á sínum með Evu frænku. Pabbi leggur af stað aðeins á undan mömmu, skutlar Evu heim til sín en kemur samt á sama tíma heim.
Bergur: "Ég sá bílinn hans pabba" (í hringtorginu við JL-húsið)
Mamma: "Er það?"
Bergur: "Vó, hann hefur pottþétt ekki lent á neinu rauðu ljósi"
Janúar 2017
Amma Gulla, afi Svenni, Erna frænka, Eva og María Líf að spila í sumarbústað.
Kemur spurning: Hvert er æðsta stig lýsingarorðsins "stór"
Eva útskýrir fyrir Maríu; góður-betri-bestur, lítill-minni-minnstur, fallegur-fallegri-fallegastur osfrv.
Eva: "Hvernig er þá stór? Stór-betri-???"
María: "Risi" :D
Janúar 2017
Almar við Berg: "Bergur, má ég sofa hjá þér í nótt?"
Bergur: "Ææææ, það er alltaf svo þröngt þegar þú ert hjá mér"
Almar: "Nú, ok, vilt þú þá sofa hjá mér í nótt?"
Bergur: "Já já" :D
------------------------------------------------
Október 2016
Bergur: "Það er sko enginn alveg eins, fólk er mismunandi"
Almar: "Jú, það er alveg til fólk sem er alveg eins"
María: "Nei, það er enginn sem er alveg eins"
Almar: "Jú, við Bergur erum alveg eins" :D
------------------------------------------------
September 2016
Mamma, Almar og Bergur að lesa söguna um Bakkabræður uppi í rúmi.
Bergur: "BAKKAbræður, eru þeir þá alltaf að bakka?" HAHAHAHAHAHA
Fannst þetta hrikalega góður brandari hjá sér
------------------------------------------------
Desember 2015
Almar og Bergur að deila um ákveðnar upplýsingar og komust ekki að samkomulagi.
Almar: "Ég veit þetta betur en þú Bergur, ég er sko 10 mínútum eldri"
Nóvember 2015
Almar og Bergur: "Mamma, veistu hvað Guðmundur í leikskólanum gerði í dag? Hann var að galdra. Hann setti krít í vasann og tók hana svo út um nefið og gerði fullt af öðrum göldrum"
Mamma: "Nú, er Guðmundur bara töframaður?"
Almar og Bergur: "Neiiiiiii mamma, hann vinnur á Dominos"
-----------------------------------------------
Júlí 2015:
Það er rétt eftir miðnætti og Bergur Sveinn er sofandi heima hjá afa og ömmu. Mamma er uppi að spjalla við ömmu og Ernu frænku. Bergur vaknar og verður sár yfir að mamma sé ekki í herberginu:
"Mamma...mig langar ekki...mig langar ekki...mig langar...mig langar...æi, ég man ekkert hvað mig langar"
-----------------------------------------------
Desember 2014:
Eva frænka: "Strákar (Almar og Bergur), hvor ykkar er stærri?
Bergur: "Ég, nei ég meina Almar, hann er 10 mínútum stærri en ég"
-----------------------------------------------
Í september 2013 var mamma að fara á vikunámskeið í skólanum í Noregi. Hún átti að leggja af stað snemma á mánudagsmorgni og var að kveðja börnin kvöldið áður og útskýra að þau myndu ekki sjást fyrr en á föstudegi. Skyndilega stendur Bergur (þá 3ja ára) upp og segir:
"Bless fyrir marga daga mamma mín"
-----------------------------------------------
Bergur 2 ára í júlí 2012: Við fjölskyldan vorum saman úti að hjóla í Noregi, Bergur í stólnum á hjólinu með pabba og María Líf og Almar Daníel í hjólavagninum. Mamma hjólaði örlítið á undan pabba.
Bergur: "Mamma, bíddu"
Mamma: "Þetta er allt í lagi, ég er hérna rétt á undan"
Bergur: "Mamma, bíddu"
Mamma: "Ég er hérna rétt á undan"
Bergur: "Mamma, hlíddu"
-------------------------------------------------
Mamma og pabbi fóru í fæðingablettatöku einn daginn og það þurfti að sauma fyrir sárið. María (4 1/2 árs) vildi endilega fá að sjá saumana og fékk það. Þá heyrist í henni:
"Var þetta gert í saumavél?" (er nokkuð hægt að gefa lýtalækninum meira hrós en þetta :)
-------------------------------------------------------------
Mamma og María Líf 4 ára voru að lesa Karíus og Baktus eitt kvöldið en María Líf spáir mjög mikið í þessum litlu köllum sem finnst sykur svo góður. Svo allt í einu segir María eftir mikla umhugsun og frekar áhyggjufull:
"Mamma, ef Karíus og Baktus gera holu í tennurnar þínar þá missir þú bara vinnuna!"
-------------------------------------------------------------
María Líf 4 ára fór í vinnuna með mömmu sinni um helgi, sem þurfti að gera við tennur hjá manni sem hafði fengið tannpínu. Þetta tók lengri tíma en venjulega en María beið þó þolinmóð og kubbaði á meðan og dundaði sér. Svo kom að því að þessu var lokið og mamma þurfti aðeins að spjalla við manninn um þetta:
Mamma við manninn: "Það væri síðan best að þú kæmir fljótlega eftir helgi til að gera við það sem eftir er"
María Líf grípur inn í: "Já, eða þú getur bara verið heima hjá þér og burstað tennurnar vel" (ein orðin leið á þessu veseni öllu :)
-------------------------------------------------------------
María Líf 4 ára og 2ja daga:
"Mamma, ég á sko 3 mömmur; þú, Erna og amma Gulla" (já, sumir búnir að vera of mikið í pössun :)
-------------------------------------------------------------
María Líf 3ja ára á leiðinni úr Herjólfi frá Landeyjahöfn til Reykjavíkur. Hún sofnaði á leiðinni og vaknaði og spurði þá:
"Erum við búin að fara framhjá Hellvelli?" (sem sagt Hellu og Hvolsvelli)
--------------------------------------------------------------
María Líf 3ja ára í heimsókn hjá Erlu frænku í Eyjum.
Erla: María Líf, geturðu hoppað hærra en Heimaklettur?
María Líf: Já, bara á trampólíni :D
--------------------------------------------------------------
María Líf 3ja ára í Herjólfi í koju þar sem hún á að sofa á leiðinni í muklum sjógangi.
María Líf: Mamma, ég er ekki þreytt, komum bara upp.
Mamma: Ég bara get það ekki ástin mín, ég gubba þá bara á leiðinni.
María Líf: Það er allt í lagi, þú kyngir því bara!!!
--------------------------------------------------------------
María Líf 3ja og hálfs árs að spila við ömmu Gullu og Ernu frænku:
María Líf: Jeiiiiii, Erna við vunnum.
Erna: Hahahah, María Líf, maður segir sko; við unnum!
María Líf: Nei, við vunnum, maður segir sko vunnum, eins og vinna :D
-------------------------------------------------
María Líf: Amma, eigum við kannski bara að vera saman í hliði?
Amma: María Líf, maður segir sko; að vera saman í liði!
María Líf: Nei, nei, það heitir að vera í hliði :D
------------------------------------------------------------
María Líf 3ja ára í heimsókn á Tannlæknastofu Heimis í Vestmannaeyjum:
Heimir: "María Líf, átt þú ekki bráðum afmæli?"
María Líf: "Jú, 5.júní, í sumar. Þá verð ég 4 ára.
Heimir: "En ég var að horfa á sjónvarpið í gær og þá var ríkisstjórnin að ákveða að
það yrði enginn 4 ára á þessu ári, allir 3ja ára verða næst bara 5 ára!"
María Líf: "Nei, þú ert bara að plata"
--- Rökræður í smá tíma ---
Heimir: "Í alvöru, ríkisstjórnin er búin að ákveða að breyta þessu til að spara"
María Líf: "Heimir, það er engin ríkisstjórn í mínu sjónvarpi!!! :)"
-------------------------------------------------------
María Líf 2ja ára var hjá Ingunni deagmömmu í Vestmannaeyjum að borða:
Ingunn: "María Líf, skolaðu nú hálsinn með vatni. Þá er auðveldara að kyngja matnum"
María Líf: Tekur vatnsglasið sitt og hellir vatninu á hálsinn á sér svo hún rennblotnar öll.
Já, það er óhætt að segja að börn taki hlutunum bókstaflega :D
--------------------------------------------
María Líf 2-3 ára: "Þetta eru rosa fínir "fokkar" sem þú átt"
María Líf notaði f í staðinn fyrir s og komu hin ýmsu orð út mjög fyndið en fyndnastir voru fokkarnir hennar :D
--------------------------------------------
María Líf 3ja ára eftir að bræður hennar fæddust:
María Líf við óléttar konur á förnum vegi: "Ert þú með barn í maganum?"
Ólétta konan: "Já"
María Líf: "Eitt eða tvö"
-------------------------------------------------------
María Líf 3ja ára að syngja "Daginn í dag" sem hún lærði í sunnudagaskólanum:
María Líf: "Daginn í dag, daginn í dag gerði drottningu, gerði drottningu..."
Mamma: "María Líf, maður segir Drottinn Guð en ekki drottningu!!!"
María Líf: "Nei maður segir drottningu, eins og drottningin í Þyrnirós!!!" :D
---------------------------------------------
María Líf 3ja ára þegar fólk er að skoða bræður hennar:
María Líf: "Þetta eru sko mínir strákar"
---------------------------------------------