Hæ hæ sæti:) Vá hvað þú ert orðinn stór, erum ekki búin að komast á netið svo lengi. Ekkert smá flottur gaur:)
Þið vitið að þið eruð velkomin í kaffi fyrir norðan ef þið eigið leið hjá:)
Kveðja Elma, Amelía Ýr og Sonja Björg
hallo..
va hvad tu ert stor og fallegur.. kem um leid i heimsokn til ykkar og knusa tig..
kossar..
Vá hvað þú ert myndarlegur strákur!! Til hamingju með svona fallegann prins!!
Kveðja Bjarkey Barnanetskona ;)
Vá hvað þú ert orðinn stór frændi flotta myndir af þér bið að heilsa ykkur öllum :)
sæta nýju myndirnar;) bið að heilsa;)
innilega til hamingju með daginn Gabríel :* (og auðvitað Steini og Svala)
hæhæ... gaman að sjá hvað hann er orðinn stór og hann er líka algjör rúsínu mús. Kveðja frá dósinni Rut og Örvar. (kíkjum kannski á ykkur 13.júlí)
Halló Gabríel
Hafðu það gott í Danmörku með mömmu
Sjáumst sem fyrst
Svanhildur Birna og mamma
Hæ Gabríel sæti, voðalega ertu orðinn stór strákur, verðum að fara að kíkja bráðum á þig, erum ekki búin að gleyma ykkur. Góða ferð til danmerkur, hafið það fínt í sólinni þar. Kv.Inga og Þrðstur
þú ert nú algjört krútt Gabríel:) góða ferð út og skemmtið ykkur vel;)
Það er aldeilis maður er orðin stór!
Alltof langt síðan ég hef séð þig...bölvað kvef hjá okkur öllum :)
Hafðu það gott duglegi strákur.
að sja þig hvað þu ert sætur strakur..
tu er alveg uppáhald:*
verð að fara að gera mer ferð til tin dullan min..
knús
Bara kikja a hann frænda minn vonandi er kvefið að batna
kv. Halla
hæhæ... kíkjum hingað reglulega.. Vildum bara kvitta fyrir okkur :)
Almáttugur hvað hann er mikið krútt þessi dúlla. Sakna ykkar og að knúsa allan daginn. Amma elskar ykkur og Heiðrún og Jónas biðja að heilsa
kveðja Amman Ásta
hæhæ, gaman að koma loksins til ykkar í gær:) vonandi ertu að hressast Gabríel sæti strákur:) sjáumst síðar
Sæll elsku besti Gabríel ofurkrútt:) Æðisleg síðan þín, mamma þín er greinilega dugleg að setja inn myndir og svona. Vildum bara kvitta fyrir okkur, leiðinlegt að komast ekki í göngutúr með ykkur i dag:( Sjáumst í næstu viku,
kveðja, þinn vinur Pétur Snær og mamma
ofsalega er síðan orðin fín :) takk fyrir lagbbið og heimsóknina í dag :) sjáumst fljótlega.
Bestu kveðjur.
Halló Gabríel, mikið ertu nú sætur,til hamingju með þetta fallega nafn það fer þér afar vel.Það væri rosa gaman að fá að hitta ykkur líka,vonandi verður það sem fyrst;)kv Inga og Nökkvi
elsku Svala og Gabríel, takk æðislega fyrir að koma á sýninguna mína í gær:) það var svo gaman að sjá ykkur:) sjáumst fljótt aftur;)
Til hamingju með pabba þinn :) Rosa flottur með húfuna. Kveðja frá Reyðarfirði. P.S Þú ert líka flottur
hæ hæ :)
Gaman að hitta ykkur í gær. Sjáumst bráðlega. Matthías Hjörtur er komin með agalega mikið kvef svo við komum örugglega ekki í kaffi á morgun. ...Heyrumst..
hæhæ, fékkstu ekki boðskortið frá mér, sendi það a e-mailið þitt:) hlakka til að sjá ykkur á sýningunni á sunnudag;)
Hæ Gabríel! Takk fyrir heimsóknina um daginn, það var gaman að fá ykkur í heimsókn, bið að heilsa gamla settinu. Kv. Inga
Flottar myndir af hópnum:)
Hæ hæ! Leiðinlegt að við gátum ekki hist í gær.
Við hlökkum mikið til að fá að hitta litla sæta Gabríel, vonandi sem fyrst.
Bara að kvitta fyrir mig,góðar myndir hjá ykkur verðum að fara að kíkja á ykkur vonandi um helgina bæbæ
þið eruð svakalega dugleg að skrifa i dagbókina.. rosalega flott síða:) sjaumst:*
Hæ hæ litla sæta fjölskylda:) ég fylgist með ykkur á hverjum degi:) vona bara að ég geta farið að sjá ykkur með berum augum nú þegar það fer að róast hjá mér, annar skólinn búinn og bara prófin eftir í hinum. svo er það bara að vinna:) heyrumst, hafið það sem allra best:) knús knús
er bara að kíkja á ykkur, Gabríel þú stækkar og stækkar. sjáumst vonandi fljótlega. kv. Thelma frænka