Hæ elsku MajBritt mín og sæta Herdís María.... Daman er ekkert smá sæt og MajBritt rosalega lítur þú líka vel út! Greinilegt að það væsir ekki um ykkur í Borgarnesi!
Tillykke með þetta allt saman og hafið það nú sem allra best!
Knús og kram frá Kaupmannahöfn
Dóra, Teitur, Tinni og Sunna
Sæl Maj Britt mín, til hamingju með afmælið 17.11.07
Vona að þið hafið átt góðan dag.Heilsist ykkur vel.
Kveðja
Elsa
hæ hæ fjölskylda og takk fyrir síðast
var rosa gaman að fá ykkur í heimsókn í bústaðinn
flottar myndir af dömunni að vanda:) og góð myndin af þeim saman;)
þangað til næst
kv.úr Hafnarfirðinum
Gasalega er Herdís María sæt :)
Hlakka til að sjá ykkur á morgun!
Hæ hó, gott að koma í smá jólaheimsókn á síðuna!
Herdís María er ekkert smá mikil skutla í gallanum frá okkur!
Hlakka til að sjá hana næst og knúsa hana...
Kveðjur frá Friskó
Dúddamía hvað lítil fröken er mikil krúttibolla!
hæ takk fyrir síðast, jóla pre-lunchin var alveg málið, ætla að fara að koma okkur í jólagírinn! Mér sýnist vera ansi mikil hjónasvipur með HN og RH, er það ekki bara klappað og klárt....;-)
mamma mín segir líka að við séum hallærismýs!!!
þessar kerlingar :-p
annars sakna ég þín og mömmu þinnar... þarf stundum maj-brittar knús þegar mér er illt í mallanum...
við hlökkum öll til að sjá ykkur aftur sem fyrst :-)
Hæ Einarínan mín.
Dúllídúl....Mikið ertu falleg. Ég er alveg að springa mig hlakkar svo til að knúsa þig.
Kveðja Anna frænka ;-)
Við vorum bara að kíkja aftur á brosmildu dömuna :)
Hæ hæ elsku litla nafna.
Það var svo gaman að hitta þig á laugardaginn. Hlakka til að hitta þig á miðvikudagskv og fá að máta þig betur (barnlaus).
kv. Herdís
Hæ Herdís María
Rosalega er gaman að skoða myndirnar þínar, þú ert orðin svo stór. Ég bara verð að fara að kíkja á ykkur...ferlegt að geta ekki keyrt bara uppí Borgarnes...það er ekki svo langt í burtu. Eins gott að mamma þín er svona dugleg að taka myndir.
Koss
Þín vinkona ;) ólöf erla
p.s. þú ert alveg svakalega lík pabba þínum :)
Elsku litla Herdís María mikið var gaman að skoða myndirnar af þér. Amma er mjög stolt af nafninu þínu . Mikið var skírnin hátíðleg - glæsileg og vel heppnuð. Hlakka til að sjá þig á morgun.
Til hamingju með nafnið Herdís María :-)
Hæ Herdís María,
Ég er nú heldur betur búin að missa mig í búðunum hérna í Helsinki. Töskuplássið það eina sem hamlar frekari kaupum.... :) Hlakka svo til að sjá þig og sýna þér allt þetta fína og fallega sem ég keypti. :)
knús Sigrún
Halló Herdís María, vildi bara óska þér innilega til hamingju með fallega nafnið þitt, vel valið hjá settinu þínu :)
Knús í krús
Fríða :)
Innilega til hamingju með fallega nafnið þitt prinsessa!
Oohh hvað það verður gaman þegar við getum hist!
Bestu kveðjur til ykkar allra
Berglind & co.
Kæra fjölskylda. Til hamingju með þetta fallega nafn. Bjarta framtíð. Þess óska, Svanhildur, Gestur, Doddi, Guðrún Jóna og Hlynur.
Kæra fjölskylda,
til hamingju með þetta fallega nafn :o)
við erum ekki margar sem berum það en ég þekki bæði frænku þína hana Herdísi og líka mömmu þína úr barnaskóla :o)
kveðja,
Herdís
Elsku Herdís María,
Mikið ertu nú falleg og nafnið alveg fullkomið! Þú er sannarlega algjör sólargeisli og já, lítil ballerína! Ég hlakka voða mikið til að hitta á þig ... og auðvita mömmu líka (sem lítur ekkert smá vel út) Hafið það sem yndislegast, litla fjölskylda, og njótið þess að vera saman :)
bkv. úr Kópavoginum :)
Elsku litla frænka. Til hamingju með nafnið þitt, Herdís María. Þetta er gott nafn að bera. Ég er ekkert smá ánægð með þetta...
Herdís frænka.
Halló!! Til hamingju með nafnið á stelpunni, fer henni vel, fallegt eins og hún :)
Elsku Herdís María, til hamingju með fallega nafnið þitt.
Hlokkum til að hitta ykkur
Bestu kveðjur frá Akranesi
Dúddamía hvað Herdís María er glæsileg stelpa! Meira hvað hún er sæt krútturassgatarófan :) Okkur þykir hún líka heita svo fallegu nafni ;)
Innilega til hamingju með fallega nafnið þitt litla dama:)
Sjáumst sem fyrst,
Bjarki og Erna
Til hamingju með nafnið litla sæta prinsessa :-*
Rosalega gaman að fá að skoða myndirnar þínar þar sem þú er svo sæt :)
Kv. Rósa Björk bifr-vinkona mömmu þinnar
Hæ og hó, takk fyrir síðast og ljúffengu skírnartertuna. Nammi namm, alltaf best daginn eftir :)
Innilega til hamingju aftur með nafnið. Skírnargjöfin kemur síðar... (búin að ákveða, samt ekki tertuspaði). Hlakka til að koma fljótt aftur með 'góssið' frá Helsinki.
Knús úr Hábænum
Sigrún & co
Flottar myndir af flottri fjölskyldu.
Enn og aftur til hamingju með þetta fallega nafn á dömuna.
kv. Birna
Æðislegar myndir úr skírninni. og ekkert smá flott veisluborð og skreytingar! Þið farið létt með ferminguna!! ;)
Og Herdís langamma ekkert smá stolt með nöfnuna sína. Til hamingju með glæsilegan dag!
knús,
sd
til hamingju með fallegt nafn!:
takk fyrir síðast og við sjáumst vonandi aftur bráðlega
kveðja úr áslandinu