Heiðný Embla
 

Gullkorn

Við vorum í Kringlunni stuttu fyrir jól. Þar var búið að skreyta risastórt jólatré. Sérðu stóra, flotta jólatréð segir mamma. "Já sæll" segir Heiðný :)

Það var um jólin 2009. Heiðný Embla vaknar um morguninn og sér skreytt jólatréð í fyrsta sinn. Hún var rosa hrifin af trénu og mamma og Heiðný spjölluðu heilmikið um jólatré, jólakúlur, jólaskraut og jólaljós. Síðan stöndum við á fætur og Heiðný fer eitthvað að rembast. Þá spyr mamma; "hvað ertu að gera". -Jólakúka segir Heiðný :):)