Elsku Sigrún til hamingju með snáðann, flottur snáði, við erum með hugan hjá ykkur, kv Svanborg
Fallegur drengur og greinilega sterk og ástrík fjölskylda sem hann á. Ég óska ykkur alls hins besta og vona að guð veri með ykkur.
til hamingju með fallegastrákinn ykkar vonandi fer þetta allt á besta veg! ást og kossar,,
Æi...:( þetta er svooo endalaust ósanngjarnt:( Ég elska ykkur svo mikið:* Ég vona að það gangi allt vel hjá ykkur og ég veit að Keran verður sterkur strákur, af því að mamma hans og pabbi eruð það:) Munið að þið megið alltaf hringja:)
Ég berst alltaf með ykkur<3<3
Bestu kveðjur og megi guð vera með ykkur
Fallegi strákur..Guð veri með þér og foreldrum þínum..ég hugsa til þín á hverjum degi.Sjálf er ég að berjast við ólæknandi sjúkdóm.Þú verður og ert í mínum bænum..
Elsku SIgrún og allir hinir!
Til hamingju með litla Keran. Rosalega er ég orðin gömul þegar "litlu börnin mín" eru sjálf farin að eiga lítil börn ;)
Baráttu og bata-kveðjur, Jóhanna Steinsdóttir
Kæra fjölskylda.
Ég sendi ykkur stuðningskveðjur og von um að allt fari vel.
Þið eigið alveg rosalega fallegan dreng, algjört augnakonfekt.
Mig langar að láta fylgja með litla bæn sem að dætur mínar eru svo hrifnar af.
Endar nú dagur, en nótt er nær,
náð þinni lof ég segi,
að þú hefur mér, Herra kær,
hjálp veitt á þessum degi.
Vertu yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni,
sitji Guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
Þið verðið í bænum okkar.
Kv. Maria.
Elsku Sigrún mín. Til hamingju með litla krúttið. Ofsalega líður tíminn hratt. Við sendum ykkur okkar allra bestu kveðjur og biðjum og vonum að allt gangi vel. Biðjum að heilsa nýju ömmunni og afanum. Lilja og Steini og fjölsk.(Malarás)
Elsku Óli og Sigrún
huur minn er hjá ykkur
og mikið eigið þið fallegan strák
Megi guð og gæfa vaka yfir ykkur litla fallega fjölskylda. Kv Erla Ingvars
Megi guð og allar góðar vættir vaka yfir ykkur og litla drengnum ykkar.
Til hamingju með fallega drenginn ykkar og nýja nafnið hans!
Ég hugsa til ykkar oft á dag og sendi ykkur baráttukveðjur.
Kveðja,
Sólveig (frænka hans Sigga hennar Hjördísar)
Innilegustu batakveðjur frá mér. Guð veri með ykkur!
Til hamingju með nafnið á fallega drengnum ykkar. Þið eruð svo sterk og ég veit að þetta mun allt saman blessast.
Kæru foreldrar.
Ég vil óska ykkur innilega til hamingju með fallega drenginn ykkar og fallega nafnið hans.
ég óska honum góðs bata, þið munið vera í bænum mínum.
kv. úr vestmannaeyjum.
Kæra fjölskylda,
Hjartanlega til hamingju með gullmolan og fallega nafnið hans.
Óska honum Keran litla góðs bata og bjarta framtíð.
Baráttukveðjur
Innilega til hamingju með nafnið þitt Keran.
Gaman að sjá myndir af fallega drengnum ykkar.
Bestu kveðjur til ykkar.
Kæra fjölskylda.
Sendi mínar bestu óskir um góðan bata. Hugsa mikið til ykkar og fylgist með þessum gullfallega dreng.
Kristín Gísladóttir
Elsku litla fjölskylda!
gangi ykkur allt í haginn með þennan litla gullmola ykkar! ofsalega er hann fallegur !
guð veri með ykkur!
Halla
Forsíðumyndin er alveg frábær! Ofsalega er þetta fallegur strákur sem þið eigið. Skoðaði nokkrar myndir af honum og hann er algjört æði. Gangi ykkur sem allra best:)
Kv Svana
Elsku fjölskylda, til hamingju með Keran litla. Hann er ofboðslega fallegur. Óska ykkur alls hins besta, og við sendum ykkur baráttukveðju. Megi allir englar heimsins vaka yfir ykkur
Kveðja Sigga Skagfj. og co.
Elsku Óli Ásgeir og Sigrún.
Til hamingju með nafnið á litla fallega drengnum ykkar. Það fylgir svo mikill kraftur þessu nafni að ég trúi ekki öðru en allt fari á besta veg með elsku litla snáðann.Bestu kveðjur til ykkar allra. Bið fyrir litla Keran. Guð geymi ykkur.
Elsku litla sæta fjölskylda.Þið eruð algerar hetjur.Mikið rosalega eru þetta fallegar myndir hjá ykkur.Guð blessi ykkur og styrki.
kv. Anna Gunna (vinkona Birnu M.)
Elsku Sigrún, Óli og Keran Stueland okkur langar að senda ykkur baráttukveðjur og þakka ykkur fyrir að fá að fylgjast með á þessari síðu.
Mikið ofboðslega eru myndirnar af ykkur fallegar, hann Keran litli er í bænum okkar á kvöldin.
Kveðja Ólöf Fanný og Kristófer.
hæhæ ! til hamingju með litla Keran, hann er gullfallegur.
Megi góður andi fylgja ykkur og veita ykkur styrk.. takk fyrir að leyfa okkur að fylgjast með ykkur !:)
Guð gefi ykkur góða nótt litla fjölskylda
knús Gunna á Hornafirði
Æðislegt að sjá það sé komin heimasíða fyrir litla frænda!
Gaman að skoða myndirnar, endilega vera dugleg að setja myndir inná svo frænka getur fylgst með!
Bið að heilsa.
Kæra fjölskylda. Innilegar hamingjuóskir með fallega drenginn ykkar. Og lilti prins, innilega til hamingju með ofboðslega fallegt og sérstakt nafn. Einstakt eins og þú !
Guð veri með þér og fjölskyldu þinni og megi allir englar alheimsins umvefja þig og fjölskyldu þína allri sinni ást og hlýju.
Foreldrar Kerans, þið eruð hetjur ! Ekkert skrítið að Keran hafi valið ykkur sem foreldra.
Baráttukveðjur, Edda og fjölskylda.
◄ 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 31 32 33 34 35 36 37 38 39 ►