Keran Stueland og Alexander Stueland Ólasynir
 

Gestabók

Snædís (intersport)

hæhæ ! til hamingju með litla Keran, hann er gullfallegur.
Megi góður andi fylgja ykkur og veita ykkur styrk.. takk fyrir að leyfa okkur að fylgjast með ykkur !:)

Skrifağ şann 24. March 2009 22:29.

Gunna

Guð gefi ykkur góða nótt litla fjölskylda
knús Gunna á Hornafirði

Skrifağ şann 24. March 2009 22:12.

Maggý frænka!

Æðislegt að sjá það sé komin heimasíða fyrir litla frænda!
Gaman að skoða myndirnar, endilega vera dugleg að setja myndir inná svo frænka getur fylgst með!
Bið að heilsa.

Skrifağ şann 24. March 2009 21:24.

Edda Viðarsdóttir

Kæra fjölskylda. Innilegar hamingjuóskir með fallega drenginn ykkar. Og lilti prins, innilega til hamingju með ofboðslega fallegt og sérstakt nafn. Einstakt eins og þú !
Guð veri með þér og fjölskyldu þinni og megi allir englar alheimsins umvefja þig og fjölskyldu þína allri sinni ást og hlýju.
Foreldrar Kerans, þið eruð hetjur ! Ekkert skrítið að Keran hafi valið ykkur sem foreldra.
Baráttukveðjur, Edda og fjölskylda.

Skrifağ şann 24. March 2009 21:23.

Arna Ósk

Kæra fjölskylda. Ég hugsa til ykkar og sendi ykkur hlýja strauma. Bið til guðs að það finnist sem fyrst hvað amar að svo að þið getið haft Keran litla heima hjá ykkur.
Kveðja Arna Ósk

Skrifağ şann 24. March 2009 21:21.

Elsa Maria

sæl kæra fjölskylda,ég er ókunnug;).Til hamingju með drenginn,hann er yndislegur!!!og nafnið hans.'Eg hugsa mikið til ykkar og bið fyrir ykkur:)

Skrifağ şann 24. March 2009 20:35.

Torfey Hafliðadóttir

Kæra fjölskylda,til hamingju með drenginn og nafnið.´Eg er með kveikt á kerti og er með ykkur í bænum mínum.Megi góður Guð veita ykkur orku og styrk í erfileikum ykkar.Gangi ykkur vel því þið eigið yndislega fallegan dreng. Kveðja Torfey.

Skrifağ şann 24. March 2009 20:15.

Hákon og Heiða

En yndislega fallegur lítill drengur. Hann er líkur Óskari afa sínum. Það er gaman að sjá hvað Óskar afi er stoltur af litla prinsinum þegar hann er í vinnunni. Við óskum ykkar alls hið besta og guð blessi ykkur öll.

Skrifağ şann 24. March 2009 19:30.

Kristín Sigurðardóttir(dóttir Dísu og Sigga)

Kæra fjölskylda Innilega til hamingju með þennan gullfallega prins.
Ég bið guð að styrkja ykkur á þessum erfiða tíma. Hugsa til ykkar og vona að hann nái bata. Knús Kristín

Skrifağ şann 24. March 2009 19:23.

Aldís Sigurðardóttir

Sæl kæra fjölskylda! Heyrði af ykkur í gegnum síðuna hennar Þórhildar Nætur. Vildi bara láta ykkur vita að við erum að hugsa til ykkar og biðjum fyrir litla fallega drengnum ykkar. Ég á lítinn strák sem er með taugasjúkdóm, sama og Þórhildur Nótt. Hann heitir Ragnar Emil og verður 2 ára í júní. Þekki þetta ferli þegar maður er að uppgötva að ekki er allt með felldu og verið er að rannsaka litlu krílin okkar. Hugur okkar er hjá ykkur, gangi ykkur sem allra best.
Kær kveðja, Aldís og fjölskylda.

Skrifağ şann 24. March 2009 19:07.

Lilja og strákarnir Patró

Við hugsum til ykkar og biðjum Guð að styrkja ykkur öll.
Knús og þúsund kossar
Lilja og strákarnir

Skrifağ şann 24. March 2009 17:13.

Lara (vogunum)

Gangi ykkur vel með strákinn ;*! Flott siða hann er ekkert smaa fallegur :)

Skrifağ şann 24. March 2009 17:09.

Gumma

Kæra fjölskylda.'Eg óska þess að ykkur gangi vel með litla drenginn ykkar hann er yndislega fallegur þessi litli engill.Svanlaug mín ég óska þér til hamingju með ömmuhlutverkið það er örugglega ekki síður skemmtilegt að vera amma en að vera mamma. kv.Gumma

Skrifağ şann 24. March 2009 16:20.

Maja og Halli Haga

Elsku fjölskylda, hugurinn er hjá ykkur og við biðjum fyrir Kerani litla!!

Skrifağ şann 24. March 2009 15:35.

Bylgja og Ásgeir

Við óskum ykkur innilega til hamingju með hann Keran litla, og vonum að allt gangi vel.
Bestu kveðjur til ykkar allra

Skrifağ şann 24. March 2009 15:18.

Kidda

Falleg síða hjá ykkur.

Skrifağ şann 24. March 2009 15:16.

Steinunn Björg

hæhæ "grannar" ég sá aðeins "glitta" ykkur hérna á Barnaspítalanum í dag.. ég hugsa mikið til ykkar og fylgist vel með! Þið eruð rosalega dugleg, mig langaði að segja ykkur frá því að það er hægt að fá video spólur og DVD og playstation á leikstofunni ;) við vissum ekki af því fyrst ;)
Kveðja Steinunn Björg og co

Skrifağ şann 24. March 2009 15:07.

Þórey Óladóttir og fjölskylda

Elsku Óli og Sigrún!
Við erum með hugann hjá ykkur og litla frænda öllum stundum, megi algóður guð og englar umvefja ykkur og bænheyra. Knús og kossar.

Skrifağ şann 24. March 2009 15:06.

Atli Freyr

Elsku Sigrún og Óli til hamingju með þennan dreng og þessu síðu flottar og sætar myndir :D

Skrifağ şann 24. March 2009 14:51.

Arna Margrét

Til hamingju með þessa flottu síðu.
Flottar myndirnar sem hún Íris ljósmyndari tók.

Ég bið Guð um að veita ykkur öllum styrk og bið hann um að fylgjast vel með Kerani litla.

Kveðja,

Arna Margrét

Skrifağ şann 24. March 2009 14:46.

Sandra, Eiríkur og börn

Kæra fjölskylda.
Við óskum ykkur innilega til hamingju með drenginn litla, megi guð og englarnir vaka yfir ykkur, þið eruð í bænum okkar.

Skrifağ şann 24. March 2009 14:20.

Margrét Gróa

Elsku Sigrún og Óli til hamingju með þessa flottu síðu. Við sendum ykkur baráttukveðjur og vonum það besta með hann Keran, guð veri með ykkur. Knús og kram frá okkur í Mosó

Skrifağ şann 24. March 2009 14:20.

Lilja (ókunnug)

Rakst á þessa síðu fyrir tilviljun. Innilegar hamingjuóskir með þennan fallega dreng og nafnið hans. Takk fyrir að leyfa okkur hinum að fylgjast með. Guð geymi ykkur. Kv. Lilja

Skrifağ şann 24. March 2009 14:03.

Margrét Gróa

Skrifağ şann 24. March 2009 13:51.

Guðbjörg Kr.

Kæra Sigrún og fjölskylda.
Mikið er litli drengurinn fallegur.
Þið eruð í huga mér og megi allar góðar vættir heimsins vaka yfir litla fallega drengnum ykkar.
*knús og kossar*

Guðbjörg Kr. ( kennari í Vogum)

Skrifağ şann 24. March 2009 12:36.

Gróa og Sigþrúður

Elsku Óli og fjölskylda
Við óskum ykkur innilega til hamingju með litla Keran. hugsum til ykkar og biðjum guð um að veita ykkur styrk.
Baráttukveðjur

Skrifağ şann 24. March 2009 12:30.

Íris Pétursdóttir

Elsku fjölskylda,
Þegar ég kom og heimsótti ykkur á föstudaginn og fékk þann heiður að mynda Keran óraði mig aldrei fyrir hversu djúpt fótspor þessi litli yndislegi drengur myndi skilja eftir í hjarta mínu. Ég hef hugsað um ykkur og til ykkar stöðugt síðan, ég bið og bið og vona og vona.
Núna sit ég og þurka táring meðan ég skirfa þetta og allra mest langar mig bara að koma og fá að knúsa hann. Ég dáist þó að því hve sterk þið öll eruð og vona að Guð gefi ykkur enn meiri styrk í framhaldinu.
Baráttu kveðjur og kærar þakkir fyrir að fá að koma og hitta ykkur og vonandi mun það sem ég gerði gleðja ykkur öll.
Íris

Skrifağ şann 24. March 2009 12:21.

Gróa Rán Birgisdóttir

Sæl Sigrún mín og litla fjölskylda. Guð geymi ykkur. Ég hugsa til ykkar alla daga og bið fyrir litla Keran á hverju kvöldi. Vonandi kemur einhvað gott út úr rannsóknunum. Hlakka til að hitta ykkur á næsta ættarmóti/jólaboði. Kær Kveðja.

Skrifağ şann 24. March 2009 12:12.

Ragnheiður Hilmarsdóttir

Hugur minn og bænir fylgja þér Keran litlu og öllu þínu fólki. Vonandi koma góðar niðurstöður hjá lækninum. Ég mun biðja þess.
Kær kveðja

Skrifağ şann 24. March 2009 12:06.

Guðbjörg og Finnur

Elsku Keran Stueland til hamingju með fallega nafnið þitt og skírnina. Guð gefi þér góðan bata elsku litli Keran þú ert svo fallegur og fínn strákur.Kæra Sigrún og Óli til hamingju með flotta strákinn ykkar þið eruð svo dugleg . Kærar kveðjur

Skrifağ şann 24. March 2009 11:53.

1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 31 32 33 34 35 36 37 38 39 40 41 42 43 44 45 46 47 48 49 50 51 52 53 54 55 56 57 58 59 60 61 62 63 64 65 66 67 68 69 70