Ingó, Erna og Litli-Úlfur
 

Að skíra í höfuðið...

Afkvæmið lítur dagsins ljós og foreldrar, vinir og vandamenn eru himinlifandi, það er að segja svona í flestum tilfellum. En tíminn líður og að því kemur að gefa þarf barninu nafn, en þá vandast málið.Móðirin vill láta barnið heita t.d. Guðmund, en faðirinn Jón. Ömmur og afar ætlast til að barnið verði skírt eftir sér og foreldrarnir verða andvaka þegar líður að því að barnið skuli skírt.

Sem betur fer er mjög hagkvæm lausn á þessum vanda, en þar sem tiltölulega fáir foreldrar hafa komið auga á hana vil ég nú gera þessu máli dálítið nánari skil. Lausnin er sú að gera eitt nafn úr tveim eða fleiri nöfnum afa eða ömmu, eða þeirra forfeðra og ættingja sem bráðnauðsynlegt er að láta heita eftir.

Ef barnið er drengur er hagkvæmt að láta hann heita eftir báðum öfunum. Svo heppilega vill til að meiri hluti íslenskra nafna eru samsett úr tveimur orðum: forskeyti og venjulegu nafni svo sem Ás-geir, Þor-kell, Guð-finnur o.s.frv.Í ljós kemur að þetta er mjög hreyfanlegt og má fá margar útgáfur, eins og t.d. Guð-geir, Ás-kell, Þor-finnur o.s.frv.

Og nú skal taka nokkur dæmi:

Afi 1 heitir: Sturlaugur. Afi 2 heitir: Starkaður. Barnið er skírt: Sturlaður
 Skammkell —————- Eilífur ——————-Skammlífur
 Ísleifur ——————— Sigurbjörn ————–Ísbjörn
 Þjóðólfur —————— Konráð —————– Þjóðráð
 Andrés——————– Eiríkur —————— Andríkur
 Albert——————— Ársæll —————— Alsæll
 Viðar———————- Jörundur ————— Viðundur
 Hringur—————— Guttormur —————Hringormur
 Stórólfur—————- Friðþjófur —————-Stórþjófur


 Nú, svo eru ýmsir möguleikar að slá ömmu- og afanöfnum saman:
 Amman heitir: Kolfinna. Afinn heitir: Dagbjartur. Barnið er skírt: Kolbjartur
 Vilborg —————- Þórhallur ————–Vilhallur
 Málfríður————- Sigfús ——————-Málfús
 Afinn heitir: Hákon. Amman heitir: Margrét. Barnið er skírt: Hágrét
 Haraldur ——————- Monika —————–Harmonika
 Kormákur ——————- Albertína ————–Kortína